Þannig var
að við létum taka í gegn baðherbergið okkar. Nýjar fallegar flísar og
fallegt handbragð, en sturtuklefinn okkar nýi sem keyptur var í
viðurkenndri verslun hér á landi, var bara ekki að standa sig í okkar
gamla húsi.
Við
þurftum að kaupa nýjan klefa og það heilan klefa sem myndi hylja
flísarnar nýju,
til að
varna
leka og til að forða neðri hæðinni frá skemmdum. "Gamli-nýi" klefinn
okkar er svokallað sturtuhorn og bara gengur ekki í okkar eldgamla
timburhúsi.
Okkur bauðst að gerast umboðsmenn á Íslandi fyrir þessa nudd-sturtuklefa
og nudd-baðker og ákváðum að panta okkur eitt stykki og er nýi klefinn
okkar vægast sagt frábær !
Vinum og ættingingjum var boðið að vera með í pöntuninni sem hefur undið
upp á sig og nú eru vinir, vina okkar og vinir, ættingja okkar farnir
að panta og allir eru velkomnir, líka "Pétur og Pála" og "Jón og Gunna".
Í dag rekum við verslun að Reykjavíkurvegi 64 í Hafnarfirði, höfum
haldið sama góða verðinu, pöntum eftir óskum, og/eða reynum að eiga á
tæki á lager - í það minnsta að stutt sé "sé í land" með vöruna.
Við erum:

Gunnar Magnússon oftast kallaður Gunni Magg
og Drífa Alfreðsdóttir.
Við búum í Hafnarfirði og rákum verslun í 20 ár
með úr og skartgripi að Strandgötu 37 í Hafnarfirði
Gunni Magg - Úr og skartgripir
www.lovedsign.is
Þú getur haft samband við okkur vegna sturtuklefa eða baðkers á
eftirfarandi hátt:
565-5566 eða
sturta hjá sturta.is.
Gunni Magg -
gunni hjá sturta.is

|